xnxxvlxx xnxxxarab www.xnxxbro.com www.xnxxpapa.com
+ (354) 8200446
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8

800 metra spretthlaup

Það hefur gengið á ýmsu hér í dalnum undanfarna daga en það komu dagar sem skiluðu 10 og upp í 15 löxum á dag en svo datt þetta niður í 2 til 4 laxa. Við lentum í því að áin fór úr eðlilegau flæði eða úr 9 rúmmetrum í 15 á einni nótt og fundum við fyrir því þegar trukkurinn sem vegur 3,5 tonn flaut á stað í saklausu vaði. Við erum ekki vanir svona miklu vatnsmagni á þessum tíma árs og minna aðstæður á miklar haustrigningar.

Það eru samt frábærar fréttir líka því í hollinu sem hætti á hádegi í gær komu 4 maríulaxar á land og veiddi það fólk ekki bara einn lax heldur fleirri í sínum fyrsta laxveiðitúr.

Flottur ungur strákur tók E.Clapton á þetta en hann setti í lax í Linufljóti og eftir harðvítuga baráttu á þeim stað tók laxinn á það ráð að færa sig neðar í ánna (hugsanlega sonur þess sem E.C fékk í 2016 í Línufljóti). Hann tók að strauja niður ánna og var tókust lax og veiðimaður gífurlaga fast á báðum endum.  Laxinn var sterkari til að byrja með og teymdi guttann alla leið niður í Hornfljót en þar sem var farið að draga af báðum aðilum. Eftir nokkurn tíma þar þá fór laxinn aðeins að gefa eftir en var hvergi nærri búinn á því en eftir góða köfun hjá gædinum komst hann það nærri höfðingjanum að hann náði að setja háfinn undir hann og þar með lauk bardaganum með sigri veiðimanns.  Laxinum var að sjálfsögðu þakkaður bardaginn og sleppt aftur til síns heim og höfðu menn á orði þegar hann var búinn að hlaða batteríin að hann væri þegar búinn að gleyma þessum vandræðum og liti ekki síður vel út í augum stelpnanna, en þetta á náttúrulega bæði við um veiðimanninn og laxinn.

Það voru teknar nokkara myndir sem ég hef ekki ennþá fengið sendi þó inn eina mjög lélega enda myndatökumaðurinn þekktur fyrir margt annað en góðar ljósmyndir. En ég vona að ég geti komið með betri myndir seinna

Með bros á vör

Megi laxinn lifa        

Drop us your email address and stay connected with us